Sveinbjörg
Hallgrímsdóttir er fædd í Reykjavík
01.10.1957. Hún hóf nám við Kennaradeild Myndlista-
og handíðaskóla Íslands árið 1974.
Á
árunum 1986 til 1990 stundaði hún nám við
Myndlistaskóla Reykjavíkur og þvínæst
við málaradeild Myndlista- og handíðaskóla
Íslands árin 1990 til 1992.
Frá
árinu 1992 hefur Sveinbjörg verið með eigin vinnustofu.
Í dag starfrækir hún vinnustofu sína og sýningaraðstöðu,
Gallerí Svartfugl og Hvítspóa í miðbæ
Akureyrar.
Samfara myndlist
starfaði Sveinbjörg sem myndlistarkennari. En nú hefur
hún helgað sig myndlistinni eingöngu.
Sveinbjörg
er félagi í grafíkfélaginu Íslensk Grafík
og Sambandi íslenskra myndlistarmanna (SÍM). Hún er einnig međlimur
í dönsku grafíksamtökunum Fyns Grafiske Vćrksted í Óđinsvéum.
Umhverfið
hefur alla tíð haft sterk mótunaráhrif á
mig. Ég naut þess að alast upp í faðmi
náttúrunnar. Ég man alltaf eftir því
þegar ég lá á jörðinni sem barn,
horfði upp í himininn og skynjaði logn eða storm,
snjó eða rigningu, heiðan himinn eða óveður.
Ekkert jafnast á við þá reynslu. Það
voru litirnir þögnin og friðurinn sem báru mig
skýjum ofar. Þetta var mitt líf, minn auður
og fjölbreytileiki.
Á
öskudaginn á Akureyri fæ ég aftur þessa
tilfinningu fyrir lífinu og tilverunni. Litadýrðin,
gleðin, frelsið og samheldnin ráða ríkjum
þrátt fyrir duttlunga himinsins. Veðurfarið skiptir
ekki máli, allir krakkar skulu klæða sig upp og taka
þátt. Ég horfi á þessar litlu kynjamyndir
sem birtast snemma að morgni á götum bæjarins,
óháðar veðri og vindum í fullum litaskrúða.
Allt sem himininn forðum, ýmist kyrrt, ókyrrt, ásjálegt
eða óásjálegt. Ég horfi á mannmergðina
liðast áfram eftir götum bæjarins og sé
þennan mannauð, mannlífið og fjölbreytileikann
í öllum sínum myndum. Skyldi himininn sortna, flýgur
hugurinn frjáls.